forsidumynd

Nýjustu fréttir

  • Gæsaveiðitímabilið hafið.

    nafnar

    Gæsaveiði tímabilið er hafið og fyrstu veiðimennirnir eru búnir að koma til okkar. Mikið af gæs er á svæðinu en gengur misvel að fá hana í túnin, en gæsin heldur sig mikið á þessum tíma upp til heiða við berjatínslu.

    Hér á myndinni má sjá nafnana Kristján Hjálmarsson og Kristján Birkir  Jónsson með fína morgunveiði.

     

    villigujn 

    Félagarnir Villi og Guðjón gerður sér ferð norður og áttu fína daga. Hitinn fór mest í 23 gráður sem þykir nú ekki ákjósanlegasta veiðiverðrið í gæsaveiði.

     

     

     


  • Gæsaveiði haustið 2010.

    veidi_18_sept08

    Góð aðsókn íslenskra veiðimanna er til okkar í gæsaveiði á komandi hausti. Nokkur veiðihollin eru að koma til okkar í fjórða árið í röð og er þetta orðinn fastur liður í veiði þessara manna. Einhverir dagar eru þó ennþá lausir ef veiðimenn eru að hugsa sér til hreyfings.


  • Bókanir hafnar fyrir haustið.

    alper_og_co

    Þegar eru hafnar bókanir fyrir gæsa og andaveiði í haust. Einnig er mikill áhugi fyrir rjúpnaveiðinni.

    Við höfum stofnað nýtt fyrirtæki undan um veiðina. Það heitir ICELANDIC HUNTING ADVENTURES ehf. og hefur ferðaskrifstofuleyfi frá ferðamálastofu. Eigendur af þessu nýja fyrirtæki eru Jón Ingi Guðmundsson, Arnar Guðmundsson og Guðmundur Örn Jónsson.

     


Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning